Flensborgarskólinn
fór af stað með stærðfræðikeppnir fyrir grunnskólanema vorið 1996. Áskell
Harðarson, þáverandi deildarstjóri í stærðfræði, var upphafsmaður
keppninnar og hefur hann frá fyrstu tíð séð um að setja saman verkefnin í
samvinnu við Einar Birgi Steinþórsson, núverandi skólameistara
Flensborgarskólans.
Síðustu árin hefur Stefán Freyr Guðmundsson fyrrverandi nemandi
Flensborgarskólans bæst í hópinn og aðstoðað við að setja saman verkefnin.
Frá upphafi hefur keppnin verið haldin fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk
grunnskólanna. Fyrsta árið var sama verkefnið lagt fyrir alla árganga en frá
1997 hefur hver árgangur fengið sérstakt verkefni.
Keppnin var fyrstu árin ætíð haldin á laugardegi, þriðju helgi í febrúar.
Fyrsta árið voru þátttakendur fyrst og fremst nemendur úr grunnskólum
Hafnarfjarðar en síðan hafa smám saman bæst við nemendur úr öðrum byggðarlögum.
Fyrst komu inn fjórir framhaldsskólar, Fjölbrautaskóli Suðurnesja,
Fjölbrautaskóli Vesturlands, Menntaskólinn í Kópavogi og Menntaskólinn við
Sund, sem héldu keppnina fyrir grunnskólanemendur á sínum upptökusvæðum. Síðar
hafa Fjölbrautaskóli Suðurlands, Menntaskólinn í Reykjavík og Fjölbrautaskólinn
í Garðabæ, Borgarholtsskóli og
Menntaskólinn á Akureyri bæst í hópinn bæst í hópinn og nýtt sér keppnina þó
ekki hafi allir verið með öll árin..
Keppnin er haldin samtímis á öllum stöðum en hver skóli sér um framkvæmd hennar
hjá sér.
|
1996
|
1997
|
1998
|
1999
|
|
2000
|
2001
|
2002
|
2003
|
|
2004
|
2005
|
2006
|
2007
|
|
2008
|
2009
|
2010
|
2011
|