KÓRS 2SL05 - Söngur og lífsfylling, 4. - 6. áfangi í kórsöng - leið B
Viðfangsefni: Söngur og lífsfylling
Lýsing: Í áfanganum öðlast nemendur áframhaldandi öryggi í kórsöng. Þeir öðlast reynslu í að syngja fjölbreytta tónlist og njóta þeirrar gleði sem þátttaka í samsöng í góðum kór veitir. Nemendur þjálfast áfram í nótnalestri og geta lesið einfaldar línur af blaði og eflast í núvitund við að taka þátt í skapandi skólastarfi. Áfanginn er fjölvalsáfangi.
Nemendur þjálfast áfram við þátttöku í þeim fjölbreyttu verkefnum sem kórinn tekur sér fyrir hendur. Kórinn æfir tvisvar til þrisvar í viku í tvo tíma í senn. Æfingabúðir eru haldnar eina helgi á hverri önn. Kórinn kemur fram við ýmis tækifæri, heldur tónleika, syngur við brautskráningarathafnir í skólanum og heldur reglulega í söngferðalög, bæði innlands og utan. Allir kórfélagar taka þátt í undirbúningi ferða, s.s. með fjáröflun o.fl.
Forkröfur: KÓRS2RÞ05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fjölbreyttum tónlistarstílum og einkennum þeirra
- helstu atriðum og táknum í kórnótum
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- taka þátt í kórsöng í fjölbreyttum stíl
- fylgja meira krefjandi ómstríðum laglínum af nótum og öðlast byrjunarleikni í lestri formerkja (lækkunar- og hækkunar)
- syngja sig saman í hljóm með öruggri inntónun og öryggi í eigin rödd
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skynja mikilvægi upplifunarinnar í kórsöngnum
- njóta fegurðar samsöngs
- meta gildi tónlistar sem listgreinar
- þroska með sér smekk fyrir kórtónlist eftir mismunandi tónlistarstefnum
- skynja ábyrgð sína sem leiðandi söngvara í hópi byrjenda
- virkja þá endurnærandi gleði sem fólgin er í tónlistarflutningi meðal vina og félaga