LÍFS 1ÉS03 (ST) - Ég, skólinn og samfélagið
Viðfangsefni: Ég, skólinn og samfélagið.
Lýsing: Nemendur kynnast skólasamfélaginu og því að vera nemandi í framhaldsskóla. Kynnt verður námsframboð, námstækni sem og upplýsinga og tölvutækni sem nýtist í námi. Lögð er áhersla á efla sjálfvitund og styrkleika nemenda. Jafnframt verður fjallað um stöðu nemandans sem einstaklings í fjölskyldu og samfélagi.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- skólasamfélaginu
- hvað felur í sér að vera nemandi í framhaldsskóla
- mismunandi námstækni, upplýsinga- og tölvutækni
- stöðu sinni og hlutverki í fjölskyldu og samfélagi
- styrkleikum sínum
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- kynna sér námsframboð innan skólans
- nota námsumsjónakerfi skólans
- átta sig á hlutverki sínu sem nemanda
- átta sig á hlutverki sínu sem einstaklings í samfélaginu
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér upplýsingar varðandi námið og skólasamfélagið
- taka ábyrgð á eigin námi
- nýta sér námstækni
- vera meðvitaður um eigin stöðu í fjölskyldu og samfélagi
- nýta sér eigin styrkleika