LÍFS 1KF05 (ST) - Samskipti kynjanna og kynfræðsla
Viðfangsefni: Samskipti kynjanna og kynfræðsla.
Lýsing: Fjallað verður um samskipti kynjanna, kynlíf, æxlunarkerfi mannsins, kynhneigð og kynheilbrigði. Lögð verður áhersla á mikilvægi gagnkvæmrar virðingar í samskiptum fólks. Jafnframt verður fjallað um kynferðislega, andlega og fjárhagslega misnotkun. Áhersla verður lögð á að efla sjálfvirðingu nemenda og mikilvægi ábyrgrar ákvarðanatöku.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- virðingu í samskiptum
- eigin mörkum og virða mörk annarra
- æxlunarkerfi mannsins
- hugtakinu kynhneigð
- ábyrgri kynhegðun
- mikilvægi kynheilbrigðis
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- átta sig á viðhorfi til kynlífs
- átta sig á að viðeigandi samskipti einkennast af virðingu
- leita sér upplýsinga varðandi kynfræðslu
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka ábyrgð á eigin samskiptum
- taka ábyrgð á eigin kynhegðun
- geta valið og hafnað í athöfnum og samskiptum