STÆR 1BM05 (ST) - Brot og mælingar
Viðfangsefni: Almennum brot, tugabrot, prósentur, tölfræði í daglegu lífi og mælingar.
Lýsing: Áhersla lögð á að dýpka skilning á almennum brotum, tugabrotum, peningum, prósentum og tölfræði í daglegu lífi og starfi. Einnig verður unnið með mælingar þ.e. þyngdar, lengdar, flatarmál, ummál og rúmmál. Áhersla er lögð á að nýta upplýsingatækni í stærðfræði.
Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandinn skal haf öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnaðgerðum stærðfræðinnar
- grunnhugtökum stærðfræðinnar
- almennum brotum
- tugabrotum
- peningum og gildi þeirra
- prósentum
- tölfræði
- mælingum
Leikniviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:
- beita viðeigandi aðgerðum og nota þær á réttan hátt
- nota almenn brot og tugabrot við útreikninga
- nota peninga
- nota prósentureikning
- nota mælingar og tölfræði
- nota viðeigandi hugtök í daglegu máli
Hæfniviðmið: Nemandinn skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér grunnaðgerðir stærðfræðinnar í daglegu lífi
- nýta sér peninga í daglegu lífi