HLSE 1ST03 (ST) - Heilsuefling fyrir starfsbraut
Viðfangsefni: Heilsuefling fyrir starfsbraut.
Lýsing: Nemendur taka þátt í almennri hreyfingu bæði innan- og utandyra. Í áfanganum er farið yfir alhliða hreyfingu og heilsurækt þar sem nemendur læra mikilvægi upphitunar, þol- , styrktar og liðleikaþjálfunar. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem þjálfa alla þætti grunnþjálfunar og læra aðferðir til að auka heilsulæsi. Í áfanganum er leitast við að nemendur bæti sig persónulega og finni út hvaða hreyfingarálag henti þeim.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi hreyfingar og hvað hægt er að æfa líkamann með fjölbreyttum hætt
- helstu þjálfunaræfingum
- mikilvægi þol-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
- gildi leikja til að byggja upp heilsuna
- að líkaminn styrkist við að stunda hreyfingu
- að hægt sé að njóta þess að stunda hreyfingu
- markmiðssetningu
Leikniviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:
- taka þátt í líkams og heilsurækt sem bæta eigin heilsu
- framkvæma þol-, styrktar- og liðleikaæfingar
- geta unnið með öðrum við hreyfingu og heilsurækt
- framkvæma æfingar á réttan hátt
- nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi
Hæfniviðmið: Nemandinn skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- átta sig á hvaða álag í líkamsrækt henti honum best
- meta stöðuna sína í þoli, styrk og liðleika
- stunda æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamlega getu