ÍSLE 1HÁ05 - Heimildavinna út frá áhugasviði
Viðfangsefni: Fræðsla um heimildir, heimildavinna út frá áhugasviði með fjölbreyttum aðferðum.
Lýsing: Kynnt verður hvað felst í heimildavinnu, hvernig heimilda er aflað og rætt um trúverðugleika heimilda. Nemendur vinna heimildaverk og velja sér viðfangsefni eftir áhuga hvers og eins. Kynnt verða mismunandi möguleikar á verkefnaskilum svo sem ritgerðir, vídeóverk, glærusýningar, leikþættir, útvarpsþættir og fleira. Nemendur kynna verk sín fyrir hópnum.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- trúverðugleika heimilda
- hvar hægt er að afla heimilda
- mismunandi leiðum í úrvinnslu
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- velja sér efni eftir áhugasviði
- afla heimilda
- vinna úr heimildum
- velja leið til úrvinnslu verkefna
- kynna heimildaverk
- hlusta á kynningu samnemenda af virðingu
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- hlusta á kynningu samnemenda af virðingu
- nýta sér mismunandi aðferðir við vinnslu heimildaverks