FÉLA 3KF05 - Kenningar og frumkvöðlar
Viðfangsefni: Meginkenningar í félagsfræði
Lýsing: í áfanganum fá nemendur kynningu á frumkvöðlum félagsfræðinnar og rannsóknaraðferðum greinarinnar. Nemendur fá þjálfun í að greina samfélagið og samskipti innan þess út frá ólíkum kenningum. Fjallað verður um eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir og farið í hin siðferðislegu vandamál er tengjast rannsóknum í félagsvísindum. Aðal markmið áfangans er að nemandi geti beitt helstu kenningum félagsfræðinnar á ýmis málefni og sitt félagslega umhverfi.
Forkröfur: FÉLA1IH05 og ÍSLE2BM05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu kenningum félagsfræðinnar, þ.e. samvirkni-, átaka- og samskiptakenningum
- aðalatriðum feminískra kenninga og póstmódernisma
- helstu hugtökum félagsfræðinnar
- helstu frumkvöðlum félagsfræðinnar og áhrif þeirra á kenningar og þróun greinarinnar
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita kenningum á sjálfstæðan hátt á ýmis málefni og sitt félagslega umhverfi í umræðum og skriflegum texta
- beita hugtökum á mismunandi viðfangsefni
- geta tengt helstu hugtök félagsfræðinnar við samfélagslega umræðu
- nýta sér fjölbreyttar heimildir til upplýsingaöflunar
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- greina samfélagslegan vanda á sjálfstæðan hátt og geta notað aðferðir félagsfræðinnar til að leita lausna
- leita að heimildum, meta gæði þeirra og vitna rétt í þær
- geta teflt saman ólíkum sjónarhornum og heimildum og sett fram á skilmerkilegan hátt
- taka gagnrýna og fræðilega afstöðu til samfélagslegra álitamála