Allir nemendur skólans fá frían aðgang að Office 365 á meðan þeir eru við nám í skólanum.
Til að breyta um lykilorð í office umhverfinu ferð þú inn á lykilord.menntasky.is, skráir þig inn með rafrænum skilríkjum og fylgir svo leiðbeiningunum á síðunni.
Nemendur og starfsmenn eru skráðir í Office 365, kerfi frá Microsoft. Á slóðinni www.office.com geta nemendur skráð sig inn með aðgangsorðinu kennitala@nff.is(notið ykkar eigin kennitölu) og lykilorði sem þeir fá úthlutað. Þar geta þeir hlaðið Office-vöndlinum inn á allt að 5 tölvur, hafa aðgang að OneDrive, OneNote, Teams, myndbandasvæði o.fl.
- Fara inn á office.com í netvafra að eigin vali.
- Smella á "Sign in" og skrifa þar inn ykkarkennitala@nff.is og smella á next
- Skrifa næst inn lykilorðið sem ykkur var úthlutað (talið við umsjónarmann tölvumála eða skrifstofu ef ykkur vantar lykilorð)
- Það þarf að hafa tveggja þátta auðkenningu fyrir office umhverfið, það kemur upp gluggi sem segir ykkur að ná í authenticator appið en það er líka hægt að velja að nota annað authenticator app eins og google authenticator eða þá "I want to set up a different method", skoðið aðferðir sem eru í boði hér: MFA leiðbeiningar - Menntaský (menntasky.is)
- Veljið hvort að þið viljið fá kóða sendan í sms eða að það sé hringt í ykkur, stimplið svo kóðan inn í reitinn.
- þegar þið eruð komin inn á office.com er hnappur uppi hægra megin sem er "install office", smellið á hann og veljið fyrsta valkostinn.
- við það byrjar OfficeSetup.exe að hlaðast niður, veljið "Run" sem birtist eða smellið á OfficeSetup.exe.
- Næst byrjar ferli sem office leiðir ykkur í gegnum, veljið Yes í þeim valkostum sem birtist og leyfið office að hlaðast inn á tölvuna ykkar.
- Þið munið sjá framfarastiku (loading bar) sem sýnir hversu mikið er búið af uppsetningunni. leyfið henni að klárast og þá er þetta komið!
Ef þessar leiðbeiningar duga ekki þá má styðjast við leiðbeiningar frá microsoft: Download and install or reinstall Microsoft 365 or Office 2021 on a PC or Mac
Varðandi flutning í Menntaskýið
Athugið að ekki endilega þarf allt að eiga við um ykkur, smellið á bláu hlekkina til að fá leiðbeiningar fyrir stuðning um eftirfarandi efni.
Við inngöngu í Menntaskýið þá þarf að huga að eftirfarandi atriðum:
- skrá inn Fjölþátta auðkenning(Multi Factor Authentication)
- Aftengja og tengja aftur OneDrive
- skrá sig út og inn í Teams
- Aðgengi í Tölvupóst
- Aftenging á school or work account ef það á við.
- Endurvirkja Office 365 innskráningu í INNU
- Skrá inn á office.com og finna gögn