Starfsmannastefna

Starfsmannastefna Flensborgarskólans

 

Í starfsfólki skólans býr mikill auður reynslu og þekkingar. Lykillinn að árangri er að skólinn hafi yfir að ráða hæfu og vel menntuðu starfsfólki, sem getur axlað ábyrgð og sýnt frumkvæði í starfi og þannig tekið virkan þátt í framþróun skólans.

Þess vegna er það stefna Flensborgarskólans að:

  • Ráða til sín áhugasamt, traust og vel menntað starfsfólk og haga stjórnun og vinnu þannig að hæfileikar, dugnaður og frumkvæði hvers starfsmanns fái notið sín.
  • Nýtt starfsfólk fái strax nægilega aðstoð til að takast á við starfið og það geri sér strax fulla grein fyrir hlutverki sínu, ábyrgð og tengslum við annað starfsfólk.
  • Allt starfsfólk leggi sitt af mörkum til að efla góðan starfsanda í skólanum m.a. með gagnkvæmri virðingu, sanngirni og hjálpsemi í garð samstarfsfólks, nemenda og annarra sem njóta þjónustu skólans.
  • Veita starfsfólki svigrúm til að sinna tilrauna- og þróunarstarfi, námsefnisgerð og nýjungum.
  • Hvetja til og stuðla að símenntun þannig að starfsfólk geti aflað sér þekkingar til að takast á við sífellt fjölbreyttari og viðameiri verkefni. Í þessu felst einnig að skólinn hvetur leiðbeinendur til að afla sér kennsluréttinda.
  • Möguleikar starfsfólks til starfsframa séu jafnir þannig að tryggt sé að hæfileikar hvers og eins nýtist sem best óháð kyni, aldri, trúarbrögðum eða litarhætti, sjá nánar í jafnréttisáætlun skólans.
  • Séð verði til þess að starfsfólk fái hvatningu og umbun fyrir vel unnin störf.
  • Skólinn leggi kapp á markvissa upplýsingagjöf til starfsfólks með tölvupósti og með reglulegum fundum.
  • Að starfsfólk sé hvatt til að huga að vistvænum lífsstíl, þ.m.t. að nýta sér vistvæna samgönguhætti, svo sem hjólreiðar og göngu, samkvæmt samgöngusamningi skólans.
  • Gefa starfsmönnum, sem þess óska, kost á sveigjanlegum vinnutíma eftir því sem unnt er.Að lögð sé áhersla á mikilvægi góðs jafnvægis milli vinnu og einkalífs enda sé Flensborgarskólinn fjölskylduvænn vinnustaður.
  • Að tryggja eins góða og heilsusamlega vinnuaðstöðu og unnt er.
  • Að eiga gott samstarf við starfsmannafélag skólans, stéttarfélög kennara og annars starfsfólks og hafa samráð við trúnaðarmenn um ákvarðanir sem snerta vinnuaðstöðu og kjaramál.
  • Verklagsreglur um forvarnir og viðbrögð gegn einelti og kynferðislegri áreitni má lesa í eineltisáæltun skólans. Einnig er farið yfir viðbrögð og verkferla í jafnréttisáætlun skólans.

 

Endurútgefið í mars 2021.

Endurútgefið í febrúar 2023.