Stjórn skólans

Dagleg stjórn er í höndum skólameistara en honum til aðstoðar eru aðstoðarskólameistari og áfangastjóri.

Að auki er skólanefnd milliliður menntamálaráðuneytis og skólameistara. Þá hefur skólameistari skólaráð sér til aðstoðar um ýmis málefni en þar eiga bæði kennarar og nemendur fulltrúa. Sameiginlega fylgja þessir aðilar lögum og reglugerðum um framhaldsskóla, námskrám og fleiru sem tryggir að nemendur fái þá þjónustu sem þeir eiga að fá.

Skólameistari: Erla Sigríður Ragnarsdóttir.

Aðstoðarskólameistari: Júlía Jörgensen.

Áfangastjóri: Árni Stefán Guðjónsson.