Skólareglur Flensborgarskólans

 

  1. Nemendur, kennarar og annað starfsfólk skal mæta stundvíslega til starfa.

  2. Nemendur og starfsfólk skal sýna hvert öðru kurteisi og tillitssemi. Kennari er verkstjóri í kennslustund. Það þýðir að fyrirmælum hans ber að hlýða svo að allir þeir sem tímann sækja, geti fengið að njóta kennslunnar í friði.

  3. Nemendur skulu fara eftir þeim reglum sem hver kennari setur um notkun farsíma og annarra tækja í kennslustundum.

  4. Nemendur og starfsfólk skal virða friðhelgi einstaklingsins og reglur skólans um persónuvernd, hvort sem það snýr að myndatökum eða meðferð gagna í eigu einstaklinga.

  5. Öll meðferð og neysla áfengis, nikótíns og annarra vímuvaldandi efna er bönnuð í húsnæði, á lóð skólans og á öðrum vettvangi skólastarfsins.

  6. Nemendum og kennurum ber að skila kennslustofum snyrtilegum í lok kennslustundar. Einnig að ganga vel um húsnæði og lóð skólans, þ.m.t. húsmuni og tæknibúnað.

  7. Nemendur bera ábyrgð á námi sínu og ber að fylgjast reglulega með tilkynningum á Innu, í tölvupósti, á vefsíðu skólans og auglýsingaskjám.

  8. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á að kynna sér reglur og starfsáætlanir skólans og kynna sér þær leiðir og möguleika sem þeir hafa til að koma málum sínum á framfæri.

  9. Öllum alvarlegri málum, svo sem ofbeldismálum eða sölu og dreifingu áfengis og ólöglegra fíkniefna, er umsvifalaust vísað til lögreglu. Skólameistari tekur ákvörðun um hvort nemanda sé vísað úr skóla á meðan á rannsókn máls stendur.

Ef nemandi er staðinn að broti á ofangreindum reglum eru upplýsingar þar um færðar inn í athugasemdir í INNU. Ef viðkomandi nemandi brýtur reglur á sama hátt öðru sinni fær hann boðun um að ræða við stjórnendur sem veita honum tiltal. Foreldrar nemenda undir 18 ára eru upplýstir um málið. Ef um frekari brot verður að ræða kemur brottvikning til athugunar.

Uppfært í mars 2022