Samstarf

 

Á vordögum 2018 úthlutaði Rannís náms- og þjálfunarstyrkjum úr menntahluta Erasmus+, mennta- og æskulýðsáætlun ESB.

Nítján skólum, sveitafélögum og fyrirtækjum sem starfa á leik-, grunn-, og framhaldsskólastigi var veittur styrkur, þar á meðal Flensborgarskólanum.

Flensborgarskólinn hlaut 24.040 € styrk til að vinna að verkefninu ,,Móttaka flóttamanna- starfsþróun starfsmanna. Styrkurinn er ætlaður í átta ferðir starfsmanna á námskeið innan Evrópu til að fræðast um málefni barna á flótta og hvaða leiðir eru bestar til að hjálpa þeim að aðlagast í nýju landi og skólakerfi.