AÍÞR1SÆ02 - Afreksíþróttir - Sérhæfðar æfingar

Viðfangsefni: Sérhæfðar æfingar og raunhæf markmið

Lýsing: Áfanginn er eingöngu ætlaður nemendum á íþróttafrekssviði og er kenndur í samráði við íþróttafélag nemandans. Áfanginn er miðaður við að nemandinn geti stundað sína íþróttagrein samhliða skóla og er einstaklingsmiðaður. Í áfanganum er unnið með sérhæfðar æfingar þannig að árangur sjáist og einstaklingurinn verði hans var. Einnig er unnið með raunhæf ferils-, frammistöðu, útkomumarkmið.

Forkröfur: AÍÞR1ÞH02

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • sérhæfðum tæknihugtökum greinarinnar og á mismunandi tegundum tækniæfinga
  • sérhæfðum hugtökum sem tengjast hreyfingu og mismunandi hreyfifærni
  • sérhæfðum hugtökum þolþjálfunar s.s lofháðri þjálfun, loftfirrðri þjálfun, vöðvaþoli, hámarksþoli og á mismunandi tegundum þolæfinga
  • sérhæfðum hugtökum styktarþjálfunar s.s hreyfivinnu, kyrrstöðuvinnu, úthaldsstyrk og hámarksstyrk og mismunandi tegundum styrktaræfinga
  • mismunandi liðleikaþjálfun s.s virkri, óvirkri, spennu-og teygjuaðferðinni og liðleikaæfingum
  • að skipta markmiðunum niður í ferils-, frammistöðu-, og útkomumarkmið og mikilvægi þess að skrifa markmiðin niður

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota tækniæfingar markvisst
  • nota hreyfifærni markvisst
  • nota þolæfingar markvisst
  • nota styrktaræfingar markvisst
  • nota liðleikaþjálfun markvisst
  • skipta markmiðunum niður og vinna með eitt í einu

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita tækni á árangusríkan hátt og geta byggt upp og sett saman ýmsar tækniæfingar
  • beita hreyfifærni á árangusríkan hátt og geta byggt upp og sett saman ýmsar hreyfiæfingar
  • beita þolæfingum á árangusríkan hátt og geta byggt upp og sett saman ýmsar þolæfingar
  • beita styrktaræfingum rétt þannig að þær efli árangur og geta byggt ofan á æfingarnar og sett fjölbreyttar æfingar saman
  • byggja upp og setja saman ýmsar liðleikaæfingar
  • meta hvort markmiðin séu raunhæf
Til baka