AÍÞR2HÁ03 - Afreksíþróttir - Hámarksárangur
Viðfangsefni: Hámarksárangur í líkamlegri þjálfun, tækniatriðum og hreyfifærni. Persónuleiki og markmiðssetning skiptir máli
Lýsing: Áfanginn er eingöngu ætlaður nemendum á íþróttafrekssviði og er kenndur í samráði við íþróttafélag nemandans. Áfanginn er miðaður við að nemandinn geti stundað sína íþróttagrein samhliða skóla og er einstaklingsmiðaður. Í þessum áfanga er unnið er út frá því að ná hámarksárangri í allri getu og í markmiðssetningu útfrá persónuleika og sjálfstrausti. Unnið er í að þróa keppnisrútinuna.
Forkröfur: AÍÞR2UA02
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- allri þeirri tækni sem þarf til að ná hámarksárangri
- þeirri hreyfifærni sem þarf til að ná hámarksárangi
- hvaða þolæfingar henta til að ná hámarksárangri
- að styrktarþjálfun er mikilvægasti þáttur þjálfunar
- að liðleikaþjálfun er mikilvægur þáttur þjálfunar til að vera með góða hreyfifærni
- að persónuleiki og þarfir hafa áhrif á markmiðssetningu og sjálfstraust
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita fullkomnum tækniæfingum og að þróa allar grunn- og sérhæfðar tækniæfingar sem þarf til að ná hámarksárangri
- beita nánast fullkominni hreyfifærni og að þjálfa áfram grunn- og sérhæfðar hreyfiæfingar til að ná hámarksárangri
- þjálfa áfram allt grunn- og sérhæft þol til að ná hámarksárangri
- halda áfram að þjálfa allan grunn- og sérhæfðan styrk til að ná hámarksárangri
- beita réttum liðleikaæfingum til að fullkomna sína hreyfifærni
- vinna með jákvætt hugarfar og efla hugrekki til framkvæmda
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nota tæknina til að fullkomna sig sem íþróttamann og fylgja eftir þeirri tækni sem þegar hefur verið náð
- nota rétta hreyfifærni til að fullkomna sig sem íþróttamann og fylgja eftir þeirri færni sem þegar hefur verið náð
- fylgja eftir því þoli sem viðkomandi hefur náð og bæta við það með réttum þolæfingum
- beita réttum styrktaræfingum, fylgja eftir þeim styrk sem viðkomandi hefur náð og kunna aðferðir til að þjálfa styrk sem gerir manni kleift að fullkomna sig sem íþróttamann
- fylgja og bæta við þann liðleika sem viðkomandi hefur náð
- finna út hvað keppnisrútina hentar hverju sinni
- bæta markmiðin sín og geta breytt markmiðum sínum miða við breytingu á getu og hugarfari