BÓKF2DR05 - Bókfærsla - Dagbók og reikningsjöfnuður

Viðfangsefni: Dagbók, reikningsjöfnuður, millifærslur, uppgjör.

Lýsing: Í þessum byrjunaráfanga er nemendum er gerð grein fyrir tilgangi bókhalds og þeim kynnt helstu lög um bókhald og virðisaukaskatt. Nemendum er veitt innsýn í notkun flestra reikninga sem telja má til grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi. Fjallað er um bókhaldshringrásina og helstu reglur tvíhliða bókhalds. Fjallað er um grunnhugtökin eignir, skuldir, gjöld og tekjur. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að annast almennar færslur í dagbók og geti gert lagfæringar á bókhaldinu með hliðsjón af einföldum athugasemdum sem varðar t.d. afskriftir, birgðatalningu, fyrirfram og ógreiddan kostnað og uppgjör virðisaukaskatts. Nemendur eiga einnig að geta sett upp rekstrar- og efnahagsreikning í lok reikningstímabils.

Forkröfur: Nemandi skal hafa lokið 1.þrepi í stærðfræði

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grundvallarhugtökum tvíhliða bókhalds; debet, kredit, eignum, skuldum, gjöldum og tekjum
  • bókhaldshringrásinni í tvíhliða bókhaldi
  • helstu lögum um bókhald og virðisaukaskatt
  • helstu reikningum sem teljast til grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi
  • fylgiskjölum, dagbók og reikningsjöfnuði

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • færa einfaldar dagbókarfærslur og stilla upp prófjöfnuði
  • færa niðurstöður dagbókar í reikningsjöfnuð
  • gera upp einföld viðskipti fyrir ákveðið tímabil
  • reikna kostnaðarverð seldra vara, vexti, afskriftir eigna, virðisaukaskatt, toll og virðisaukaskatt af innflutningi, gengismun, söluhagnað (tap) af seldum eignum og gera leiðréttingarfærslur og gera upp virðisaukaskatt
  • setja upp einfaldan efnahags- og rekstrarreikning

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hefja bókhald með hliðsjón af fyrirliggjandi efnahagsreikningi eða stofnun fyrirtækis
  • gera lagfæringar á bókhaldi með með hliðsjón af einföldum athugasemdum, svo sem varðandi afskriftir, birgðatalningu og fyrirfram og ógreiddum kostnaði eða tekjum
  • setja upp einfaldan rekstrar- og efnahagsreikning í lok reikningstímabils að teknu tilliti til athugasemda og lokafærslna
Til baka