BÓKF3IF05 - Bókfærsla - Innflutningur og fyrirtæki
Viðfangsefni: Dagbók, T-reikningar, reikningsjöfnuður, millifærslur, uppgjör.
Lýsing: Gert er ráð fyrir að nemendur sem hefja nám í þessum áfanga hafi fullt vald á bókhaldshringrásinni, geti hafið bókhald og lokað því samkvæmt reglum tvíhliða bókhalds. Þessi kunnátta er dýpkuð verulega meðal annars með erfiðari færslum. Farið yfir bókun á helstu reikningum fyrirtækja; notkun fyrningareikninga við afskriftir eigna, bókun hluta- og skuldabréfa og notkun affallareiknings. Einnig er farið yfir bókanir sem varða innflutning; tollafgreiðslu, greiðslu virðisaukaskatts í tolli, kostnað og fyrirkomulag við geymslu á vörum í tollvörugeymslu. Uppgjörsfærslum er haldið áfram í gegnum reikningsjöfnuð. Farið er yfir bókanir í sambandi við stofnun og slit fyrirtækja, breytingar á réttarformi, samruna og fjárhagsleg endurskipulagningu fyrirtækja.
Forkröfur: BÓKF2DR05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu innflutningsskjölum vegna tollafgreiðslu og greiðslu virðisaukaskatts í tolli
- lögum um toll og virðisaukaskatt af innflutningi
- færslum vegna innflutnings á vöru
- gengisbreytingum vegna erlendra viðskiptaskulda og/eða viðskiptakrafna
- kostnaði og fyrirkomulagi við geymslu á vöru í tollvörugeymslu
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- reikna og bóka verðbætur, vexti og afborganir af óverðtryggðum og verðtryggðum skuldabréfum
- reikna og bóka færslur sem tengjast hlutabréfaeign, arði, gengisbreytingum, jöfnunarhlutabréfum o.s.frv.
- bóka færslur sem varða stofnun og slit félaga
- bóka færslur sem varða breytingu á réttarformi fyrirtækja, samruna og fjárhagslega endurskipulagningu þeirra
- meðhöndla mismunandi virðisaukaskattsþrep í bókhaldi
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- hefja bókhald með hliðsjón af fyrirliggjandi efnahagsreikningi eða stofnun fyrirtækis
- leysa af hendi lagfæringar í bókhaldi með hliðsjón af athugasemdum
- setja upp einfaldan rekstrar- og efnahagsreikning í lok reikningstímabils að teknu tilliti til athugasemda og lokafærslna
- færa tvíhliða bókhald fyrir lítinn og einfaldan atvinnurekstur