DANS1GR05 - Danska - Grunnáfangi

Viðfangsefni: Orðaforði sem tengist samskiptum, líkama, mat, heimili, menntun og vinnu, grunnatriðið í málfræði, tölur, hlustunar- og talæfingar sem tengjast orðaforðanum, framburður.

Lýsing: nemandinn öðlist grunnfærni í dönsku í gegnum þematengda texta þar sem unnið er með orðaforða, ritun, talað mál, hlustun og málfræði.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnorðaforða áfangans
  • grundvallaratriði málkerfisins
  • mannlífi, menningu og siðum landsins
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
 
  • skilja talað mál sem tengist orðaforða áfangans
  • tjá sig skriflega um efni tengt orðaforða áfangans og fari eftir grundvallarreglum málkerfisins
  • tjá sig munnlega um efni tengt orðaforða áfangans
  • skilja talað mál sem tengist orðaforða áfangans
  • nýta sér hjálpargögn, rafræn og bóklega

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • taka þátt í einföldum umræðum og beita grundvallarreglum í framburði
  • miðla efni munnlega sem hann hefur aflað sér þekkingar á
  • miðla efni skriflega sem hann hefur aflað sér þekkingar á
  • afla sér upplýsinga úr hlustunaræfingum sem tengjast orðaforða áfangans
  • lesa og skilja einfalda texta, ótengda orðaforða áfangans