DANS1TO05 - Danska - Tjáning og orðaforði

Viðfangsefni: Tjáning og orðaforði. Þemu: Ferðalög og ungmenni. Unnið markvisst með orðaforða bæði í ritun, hlustun og tali. Smásögur lesnar. Hnykkt á grunnatriðum málfræði. Framburður bættur.

Lýsing: Nemandinn öðlist nokkra færni í gegnum þematengda texta. Unnið með grunnþættina fjóra, lestur, hlustun, ritun og talað mál. Upprifjun á grunnþáttum málfræði.

Forkröfur: Hæfnieinkunn C+ við lok grunnskóla eða staðist áfangann DANS1GR05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • orðaforða og málbeitingu tengdum þemum áfangans
  • samskiptavenjum
  • helstu grundvallarþáttum málkerfisins
  • helstu framburðarreglum í dönsku

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • rita samfellda texta um fjölbreytt efni
  • skilja lengri texta um ýmis málefni
  • tjá sig munnlega um efni tengd þemum áfangans svo og almenn efni
  • geta skilið í grófum dráttum aðalatriðið í útvarps- og sjónvarpsþáttum um málefni líðandi stundar
  • segja sögu eða segja frá söguþræði í bók/kvikmynd og ígrunda eigin skoðun

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig í ræðu og riti um almenn efni en einnig sértæk efni áfangans
  • fylgjast með sjónvarps- og útvarpsfréttum um ýmis efni
  • skilja texta um almenn efni en einnig sértæk efni áfangans
  • nota upplýsingatækni