DANS2FD05 - Danska - Ferðatengd efni og Danmörk
Viðfangsefni: Kaupmannahöfn og ferðatengd viðfangsefni
Lýsing: Ferðatengd viðfangsefni. Lögð áhersla á að efla alla þætti tungumálsins, auka sjálfsöryggi nemandans og sjálfstæði í vinnubrögðum. Tal: Áhersla lögð á að þjálfa réttan framburð. Nem. kynna munnlega verkefni ýmist einir eða í litlum hópum. Hlustun: byggir aðallega á dönskum sjónvarpsfréttum, tónlist og öðru efni á netinu. Ritun: Nem skrifa ýmis konar texta eins og ferðasögur, ferðakynningar eða túlka skoðanir sínar á efni tengdu lesefni áfangans. Lestur: Nem lesa nokkrar smásögur og ýmis konar ferðatengda texta úr kennsluhefti áfangans ásamt efni af netinu td. í sambandi við þemavinnu. Málfræði: aðal áhersla er á sagnir .
Forkröfur: Nemandi skal hafa lokið grunnskólaprófi með einkunn B, B+ eða A, eða staðist áfangann DANS1TO05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- orðaforða og orðasamböndum tengdum viðfangsefni sem hann vinnur með, bæði munnlega og skriflega
- gildum og viðhorfum í dönsk samfélagi og hvernig þau móta danska menningu
- notkun hjálpargagna m.a. notkun orðabóka á netinu
- töluðu máli, þar sem talað er skýrt um kunnuglegt málefni
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- hlusta á talað mál og skilja meginmál t.d í fréttum og leiknu efni
- lesa margs konar tegundir texta sér til skilnings
- beita mismunandi lestraraðferðum eftir tegundum texta og eðli verkefna sem unnið er með
- tjá sig munnlega um efni sem tengjast verkefnum áfangans
- tjá sig skriflega um efni sem tengjast verkefnum áfangans
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna að skapandi verkefnum og túlka texta
- skilja fjölmiðlaefni og megininntak lesefnis um efni sem hann þekkir til
- flytja verkefni fyrir framan nemendahóp og kennara af sannfæringu
- bera ábyrgð og vera samvinnufús í verkefnavinnu
- ígrunda eigið námsframlag og vinnubrögð