DANS2FK05 - Danska - Framhaldsáfangi - Ferð til Kaupmannahafnar
Viðfangsefni: Kaupmannahöfn og ferðatengd viðfangsefni
Lýsing: Í áfanganum er fjallað um ævintýri í víðu samhengi, þau lesin og greind. Nokkrar smásögur lesnar og unnið með á nýstárlegan máta. Skáldsaga lesin sem og kvikmyndir nýttar til að efla málskilning og máltilfinningu. Fjölmiðlaflóra í Danmörku skoðuð. Sérstök áhersla lögð á talað mál. Eitt af markmiðum áfangans er að heimsækja Kaupmannahöfn.
Forkröfur: DANS2FD05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ævintýrum, uppbyggingu og helstu þáttum
- aktantmódelinu
- uppbyggingu frétta, bæði í sjónvarpi, útvarpi og dagblöðum
- helstu framburðarreglum í dönsku
- helstu ferðamannastöðum í Kaupmannahöfn og nágrenni
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- rita samfellda texta um fjölbreytt efni
- skilja lengri texta um ýmis málefni
- tjá sig munnlega um efni tengd þemum áfangans svo og almenn efni
- geta skilið í þaula aðalatriði í mörgum útvarps- og sjónvarpsþáttum um málefni líðandi stundar
- geta sagt sögu eða sagt frá söguþræði í bók/kvikmynd og ígrundað eigin skoðun
- setja fram rökstudda gagnrýni
- beita tungumálinu til að fá upplýsingar sem ferðamaður í Kaupmannahöfn
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig í ræðu og riti um almenn efni en einnig sértæk efni áfangans
- fylgjast með sjónvarps- útvarpsfréttum um ýmis efni
- skilja texta um almenn efni en einnig sértæk efni áfangans
- nota upplýsingatækni
- lesa á milli línanna, átti sig á dýpri merkingu texta og orðræðu í texta og tali
- geta á skipulegan hátt flutt mál sitt munnlega og skriflega
- lesa, túlka og færa sér í nyt ýmsar nauðsynlegar upplýsingar í Kaupmannahöfn