DANS2KV05 - Danska - Framhaldsáfangi Danskar kvikmyndir

Viðfangsefni: Danskar kvikmyndir frá mismunandi tímabilum

Lýsing: Áfanginn fjallar um danskar kvikmyndir. Horft verður á kvikmyndir frá mismunandi tímabilum, þær greindar og tengdar við lesið efni sem tengist þeim eða þemu þeirra. Lögð er áhersla á alla þætti tungumálsins, að efla sjálfsöryggi nemandans, tjáningu og að hann komi hugsunum sínum til skila á skýran hátt.

Forkröfur: DANSK2FD05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu stefnum og straumum sem ríkjandi hafa verið í danskri kvikmyndagerð
  • þeim kvikmyndum sem markað hafa tímamót í danskri kvikmyndagerð
  • hvernig dönsk menning og samfélag endurspeglast í kvikmyndunum
  • hvernig setja skuli fram rökstudda gagnrýni

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tjá sig munnlega og skriflega um efni áfangans
  • skilja ritað mál sem tengist efni kvikmyndanna
  • skilja talað mál
  • skrifa kvikmyndagagnrýni á dönsku
  • nota upplýsingatækni (t.d. smáforrit, snjallvefi) og önnur hjálpargögn

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • öðlast betri innsýn inn í danska menningu og þjóðarvitund
  • skilja daglegt talað mál hvort sem hann þekkir umfjöllunarefnið eða ekki
  • afla sér upplýsinga úr textum til að öðlast dýpri skilning á viðfangsefninu
  • lesa á milli línanna, átti sig á dýpri merkingu texta og orðræðu í kvikmyndum
  • flytja mál sitt á skipulegan hátt, bæði munnlega og skriflega
  • beita rökum og gagnrýnni hugsun í umfjöllun á tilgreindu efni
Til baka