Viðfangsefni: Norðurlöndin, Danmörk, menning og hefðir, menntun, atvinnumennska
Lýsing: Nemendur kynna sér Norðurlöndin. Farið verður í danskar hefðir, menningu, sögu og þekkta einstaklinga. Nemendur kynna sér ítarlega ákveðna þætti í menningu í sögu Danmerkur. Fylgjast með fréttum líðandi stundar. Nemendur kynna sér hvað þarf að huga að þegar flutt er til Danmerkur, námsframboð og atvinnumennsku. Nemendur dýpka sig á því sviði sem þau hafa áhuga á.
Forkröfur: BÓKF2DR05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Orðforða og orðasamböndum tengt því viðfangsefni sem hann vinnur með, bæði munnlega og skriflega
-
Notkun hjálpargagna
-
Gildum og viðhorfum í dönsku samfélagi og hvernig þau móta danska menningu
-
Helstu hefðum danskt samfélags
-
Helstu framburðarreglum í dönsku
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
-
Skilja lengri texta um ýmis málefni
-
Rita samfelldan texta um fjölbreytt efni
-
Tjá sig munnlega um efni tengd þemum áfangans svo og almenn efni
-
Beita gagnrýnni hugsun í ritun og tali
-
Geta skilið aðalatriði í sjónvarpsfréttum um málefni sem hafa verið til umfjöllunar
-
Geta dýpkað skilning sinn á tilteknum málefni með hjálp upplýsingatækni
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
-
Vinna að skapandi verkefnum tengdum efnivið áfangans
-
Tjá sig í ræðu og riti um almenn efni en einnig sértæk efni áfangans
-
Öðlast betri innsýn inn í danska menningu