EÐLI1KE05 - Eðlisfræði - Kynning á eðlisfræði
Viðfangsefni: Eðlisfræði í daglegu lífi
Lýsing: Einfaldar jöfnur hreyfifræði, kraftur og árekstrar. Vikuleg einföld tilraun með verkefnaskilum.
Forkröfur: Kominn á 2.þrep í stærðfræði
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunneiningakerfi, forskeyti, notkun eininga í daglegu lífi í auglýsingum og kynningarefni
- sambandi staðsetningar, hraða, hröðunar og tíma, Vegalengd, ferðatími og eðli fallhreyfingar
- sambandi krafts, þrýstings og atlags. Lyftikraftur, flotkraftur og spyrnukraftur. Eðlismassi
- grunnsambandi rafspennu, rafhleðslu, rafstraums og viðnáms. Umhverfisvæn og endurnýjanleg orka
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita eðlisfræðilegri rökhugsun við að greina náttúrulögmál að verki
- lesa úr línuritum sem tengja staðsetningu og hraða við tíma
- beita einföldum jöfnum til að reikna óþekkta stærð út frá gefnum forsendum
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar
- framkvæma tilraunir eftir fyrirmælum og skrifa athuganir í hópsamvinnu
- sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á námsframvindu sinni