EÐLI2HK05 - Eðlisfræði - Hreyfing og kraftar

Viðfangsefni: Hreyfing og kraftar

Lýsing: Hreyfing hluta í tvívíðu rúmi og kraftar sem stjórna henni. Orkuvarðveisla og skriðþungi, þrýstingur, uppdrif og ljósgeislafræði.

Forkröfur: STÆR2AF05 og EFNA2AM05 (má vera samhliða)

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunneiningakerfi, forskeyti, afleiddar einingar, mælistærðir, vigurstærðir
  • samband staðsetningar, hraða, hröðunar og tíma
  • kraftlögmál, sundurliðun krafta eftir skáfleti og krafthalla
  • orkulögmálin, vinna og afl, skriðorka, stöðuorka, varmamyndun, atlag í árekstrum
  • lögmál Arkimedesar, þrýstingur í vökvum, linsur og ljósbrot

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja línurit sem tengja staðsetningu, hraða og hröðun við tíma, finna merkingu hallatölu og flatarmáls
  • nota vigra til að sundurliða krafta, nota hornaföllin á hagnýtan hátt við kraftaútreikning
  • reikna vinnu, afl og nýtni, beita orkuvarðveislu við lausn á myndbreytingu orkunnar
  • nota samband atlags og skriðþunga ásamt varðveislulögmálum til að reikna hreyfingu eftir árekstur
  • reikna uppdrif og burðargetu, teikna leið geisla gegn um misþétt efni og linsur

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • útskýra lausnir eðlisfræðidæma fyrir bekkjarfélögum
  • framkvæma tilraunir eftir fyrirmælum og skrifa skýrslur í hópsamvinnu
  • sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á námsframvindu sinni
  • meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga eru raunhæfar
  • tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar