EFNA1EU05 - Efnafræði - Efnin og umhverfið

Viðfangsefni: Atómið, Formúlur, lotukerfið, efnajöfnur, efnahvörf, orka, umhverfið og efni í daglegu lífi

Lýsing: Áfanginn er fyrir nemendur á öðrum brautum en raunvísindabraut.

Fjallað verður um grunnatriði efnafræðinnar, þannig að nemendur öðlist skilning á uppbyggingu efna, helstu einkennum þeirra og hvað gerist við efnahvörf. Fjallað verður um efni sem skipta máli í daglegu lífi, t..d inn á heimilum, orkuefni, náttúruleg efni og mengunarefni. Fjallað verður almennt um orku sem felst í efnahvörfum og nýtingu orkulosunar í samfélaginu. Áhersla verður lögð á tilraunir og verkefni.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppbyggingu atómsins
  • flokkun efna, hambreytingum, aðgreiningu efna og leysni
  • lotukerfinu
  • formúlum efna og heitum, efnahvörfum, ritun efnajafna og stilling þeirra
  • tengingu efnahvarfa og orku
  • lofthjúpnum, náttúrulegum efnum og mengandi sem koma þar við sögu
  • vatnsbúskap, náttúrulegum efnum og mengandi sem koma þar við sögu

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna með upplýsingar um öreindir atóms
  • flokka efni og skrifa jöfnur fyrir hambreytingar
  • nýta upplýsingar úr lotukerfinu
  • stilla efnajöfnur
  • greina á milli lífrænna og ólífrænna efna
  • greina á milli hinna ólíku orkugjafa og afhverju þeir gefi orku
  • greina á milli hinna ólíku mengunarvalda í lofti og legi
  • skilgreina hin ýmsu efni, sem snerta daglegt líf
  • nýta sér upplýsingar um efnafræðileg tengd málefni og vinna úr þeim

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér grunnþekkingu á byggingu atóma og efnis, til almenns skilning í efnafræði
  • gera sér grein fyrir efnum í umhverfi sínu, bæði náttúruleg og af mannavöldum
  • sýna skilning á mikilvægi sjálbærni þegar kemur að orkunýtingu mannsins
  • vera ábyrgur í notkun efna á heimilum og í daglegu lífi
  • vinna með upplýsingar og setja þær fram á skilmerkilegan hátt
  • beita skapandi hugsun og sýnt frumkvæði við lausn verkefna