Viðfangsefni: Efnahvörf í lausnum og magnútreikningar í lausn. Varmafræði. Lotubundnir eiginleikar frumefna. Gunnhugtök efnatengja og Lewis bygging efnasambanda. VSEPR lögun sameinda og efnatengi.
Lýsing: Í þessum áfanga er haldið áfram að vinna með grunnatriði ólífrænnar efnafræði og einnig byggt ofan á fyrri þekkingu. Farið verður í: Efnahvörf í lausnum, almenna eiginleikar lausna, rafvaka, fellingar-, sýru/basa- og oxunar/afoxunarhvörf, styrk lausna og hlutfallaútreikninga lausna og efnagreiningu. Fyrsta lögmál varmafræðinnar, innri orku, inn- og útvermin ferli, hvarfavarma og myndunarvarma. Lotubundna eiginleika frumefna, virka kjarnhleðslu, atómradíus, jónunarorku, rafeindafíkn, málma, málmleysingja og hálfmálma. Eiginleika virkra málma og valinna málmleysingja. Efnatengi, jóna- og samgild tengi, Lewistáknun, skautun efnatengja og rafdrægni, átturegluna og undantekningar. Lögun sameinda, VSEPR líkanið og skautun sameinda, (skörun svigrúma)
Forkröfur: EFNA2AM05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þeim hugtökum, lögmálum og reglum sem áhersla er lögð á í áfanganum
- eiginleikum lausna
- fellingar- sýru/basa- og oxunar/afoxunarhvörfum
- styrk lausna og hlutfallaútreikningum lausna
- orkuhugtakinu, hvarfavarma efnahvarfa, inn- og útvermum efnahvörfum og myndunarvarma
- lotubundna eiginleikum frumefna og einkennum frumefna eftir staðsetningu þeirra í lotukerfinu
- flokkun efnasambanda. Eðli jóna- og samgildra tengja
- lewistáknun og Lewis byggingu efnasambanda og skautun efnatengja
- lögun sameinda og VSEPR líkaninu
- vinnubrögðum við tilraunir og framsetningu niðurstaðna
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þekkja mismunandi gerðir efnahvarfa og segja til um myndefni fellingar- sýru/basa- og oxunar/afoxunarhvarfa
- reikna mólstyrk og útreikninga tengda honum
- reikna: innri orkubreytingu, hvarfavarmabreytingar efnahvarfa og myndunarvarma
- meta breytingar á virkri kjarnhleðslu, atómradíus, jónunarorku og rafeindafíkn eftir stöðu efna í lotukerfinu og áhrif þessara þátta á eiginleika frumefna
- greina á milli jónatengja- samgildra- og skautaðra samgildra tengja
- teikna Lewisbyggingu sameinda
- nota VSEPR líkan til að finna lögun sameinda
- meta hvort sameindir séu skautaðar
- framkvæma einfaldar tilraunir og setja fram niðurstöður þeirra á skýran hátt í skýrslu
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- útskýra mismunandi efnahvörf og efnajöfnur
- nota gögn eins og lotukerfi og varmafræðilegar töflur til upplýsinga
- leysa af hendi útreikninga hvað varðar styrk lausna og orku í efnahvörfum
- vinna sjálfstætt og í hóp við lausn og úrvinnslu gagna
- geta rökstutt og dregið ályktanir út frá þekkingaratriðum áfangans
- tengja í auknu mæli efnafræði við daglegt líf, umhverfi og við aðrar raungreinar