EFNA3GH05 - Efnafræði - Gasjafnan, hraðafræði og efnajafnvægi
Viðfangsefni: gasjafnan, eiginleikar vökva, hraðafræði og efnajafnvægi
Lýsing: Þessi áfangi fjallar um gasjöfnuna, eiginleika vökva, hraða efnahvarfa og efnajafnvægi. Einnig er lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð í verklegri kennslu.
Forkröfur: EFNA2VV05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu eiginleikum gastegunda, vökva og fastra efna
- lögmáli Boyles, Charles og Avogadros og hvernig þau lögmál mynda kjörgasjöfnuna
- millisameindakröftum
- helstu styrkeiningum lausna
- hraða efnahvarfa og hvernig hann er háður hitastigi, styrk efna og tilvist hvata
- reglu Le Chatelier um efnajafnvægi og hliðrun á jafnvægisstöðu
- hugtökunum rokgirni, gufuþrýstingur, krítískur hiti
- umhverfum efnahvörfum
- einkennum mettaðra, ómettaðra og yfirmettaðra lausna
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna með kjörgasjöfnuna
- útskýra helstu millisameindakrafta
- reikna orkubreytingar í efnahvörfum
- setja upp hraðalögmál og reiknað dæmi út frá því
- setja upp jafnvægislíkingu og reiknað dæmi tengd henni
- setja upp varmakúrfur og útskýrt þær
- teikna upp fasagröf og útskýra þau
- greina á milli út- og innverminna ferla
- reikna styrk lausna í ýmsum einingum
- greina á milli 1° og 2° hvarfa út frá niðurstöðum mælinga
- framkvæma verklegar æfingar á sjálfstæðan átt og skrifa góða einstaklingsskýrslu
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- standa undir auknum kröfum um sjálfstæði í vinnubrögðum og ábyrgð á eigin námsframvindu
- nýta sér flókinn texta og gögn á markvissan hátt
- tengja saman efnisþætti efnafræðinnar við lausn flókinna verkefna
- tengja efnafræðina við daglegt líf, umhverfi og aðrar náttúrufræðigreinar og sjá notagildi hennar
- meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt