ENSK1GM05 - Enska - Grunnmálfræði

Viðfangsefni: Grunnmálfræði

Lýsing: Áfanginn byggir á orðaforða, ritun, málfræði og lestri. Unnið er út frá ákveðnum þemum og verkefnum. Áhersla er á að nemandinn nái tökum á grunn málfræði sem skilgreind er í þrepi A1 skv. Evrópsku tungumálamöppunni. Áfanginn á að undirbúa nemendur fyrir nám á stigi A2 skv. Evrópsku tungumálamöppunni.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í Evrópsku tungumálamöppunni.
  • gundvallarreglum tungumálsins
  • formgerð og byggingu texta
  • mismun á rituðu og töluðu máli

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja talað mál þar sem rætt er um kunnugleg málefni
  • lesa mismunandi texta
  • fara eftir grundvallarreglum tungumálsins
  • beita upplýsingatækni við nám sitt

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • fylgjast með frásögn og umfjöllun
  • tala um tiltekið efni sem nemandi hefur kynnt sér
  • lesa sér til ánægju