ENSK1HE05 (ST) - Enska - Hagnýt enska
Viðfangsefni: Málskilningur, málnotkun, lestur, hlustun, ritun og orðaforði í tengslum við ferðamennsku og ferðalög.
Lýsing: Áhersla verður lögð á að efla alla grunnþætti, s.s. málskilning, málnotkun, lestur, hlustun og ritun. Nemendur eru þjálfaðir í að skilja einfalt talað mál, tjá sig munnlega og skriflega og lesa og hlusta á einfalda texta um fjölbreytt málefni. Mest er unnið með orðaforða sem tengist daglegu lífi nemenda með áherslu á að auka sjálfstraust til að tjá sig á tungumálinu. Megin áhersla verður lögð á að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemendur hafa, með þeim kennsluaðferðum og hjálpargögnum sem henta hverjum og einum. Nemendur miðla eigin reynslu af upplifun sinni á ensku og gildi hennar í þeirra lífi. Þeir æfa algengan orðaforða í tengslum við ferðamennsku og ferðalög.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- einföldum orðaforða í tengslum við efni áfangans
- orðaforða sem tengist daglegu lífi og athöfnum
- lestri og ritun einfalds texta
- mikilvægi hlustunar í tungumálanámi
- upplýsingatækni sem nýtist í tungumálanámi
- mikilvægi þess að geta bjargað sér á ensku
Leikniviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:
- nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
- lesa og hlusta á einfaldan texta og vinna verkefni tengd honum
- byggja upp og bæta við orðaforða sinn með mismunandi aðferðum
- svara einföldum spurningum um daglegt líf
- fylgja eftir og taka þátt í einföldum samræðum
- nýta sér einfaldan orðaforða sem tengist ferðamennsku og ferðalögum
Hæfniviðmið: Nemandinn skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nota orðaforða og þekkingu í ensku við mismunandi aðstæður
- vinna á fjölbreyttan hátt með einfaldan texta
- beita virkri hlustun til að skilja inntak samræðna sem eiga sér stað í kennslustund
- taka virkan þátt í umræðum á ensku um fjölbreytt málefni
- sýna frumkvæði og sjálfstæði í notkun upplýsingatækni og hjálpargagna sem nýtast í tungumálanámi
- auka sjálfstraust og trú á eigin getu við að skilja og tjá sig á ensku
- geta nýtt sér tungumálið til að tjá sig í tengslum við ferðalög og ferðamennsku