ENSK1LM05 (ST) - Enska - Menning og mannlíf

Viðfangsefni: Málskilningur, málnotkun, lestur, hlustun, ritun, menning og mannlíf í löndum þar sem enska er aðaltungumálið.

Lýsing: Áhersla verður lögð á að efla alla grunnþætti, s.s. málskilning, málnotkun, lestur, hlustun og ritun. Nemendur eru þjálfaðir í að skilja einfalt talað mál, tjá sig munnlega og skriflega og lesa og hlusta á einfalda texta um fjölbreytt málefni. Mest er unnið með orðaforða sem tengist daglegu lífi nemenda með áherslu á að auka sjálfstraust til að tjá sig á tungumálinu. Megin áhersla verður lögð á að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemendur hafa, með þeim kennsluaðferðum og hjálpargögnum sem henta hverjum og einum. Nemendur fá innsýn í nokkur lönd þar sem enska er aðaltungumálið. Sérstaklega verður horft á mismunandi framburð, umhverfi, mannlíf og menningu.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • einföldum orðaforða í tengslum við efni áfangans
  • orðaforða sem tengist daglegu lífi og athöfnum
  • lestri og ritun einfalds texta
  • mikilvægi hlustunar í tungumálanámi
  • upplýsingatækni sem nýtist í tungumálanámi
  • heiti nokkurra landa þar sem enska er töluð

Leikniviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:·

  • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
  • lesa og hlusta á einfaldan texta og vinna verkefni tengd honum
  • byggja upp og bæta við orðaforða sinn með mismunandi aðferðum
  • svara einföldum spurningum um daglegt líf
  • fylgja eftir og taka þátt í einföldum samræðum
  • skoða umhverfi, menningu, mannlíf og mismunandi framburð í nokkrum löndum þar sem enska er aðaltungumálið

Hæfniviðmið: Nemandinn skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nota orðaforða og þekkingu í ensku við mismunandi aðstæður
  • vinna á fjölbreyttan hátt með einfaldan texta
  • beita virkri hlustun til að skilja inntak samræðna sem eiga sér stað í kennslustund
  • taka virkan þátt í umræðum á ensku um fjölbreytt málefni
  • sýna frumkvæði og sjálfstæði í notkun upplýsingatækni og hjálpargagna sem nýtast í tungumálanámi
  • auka sjálfstraust og trú á eigin getu við að skilja og tjá sig á ensku
  • nota orðaforða og þekkingu í ensku í umræðu og verkefnavinnu um lönd þar sem enska er aðaltungumálið