ENSK1OÁ05 (ST) - Enska - Orðaforði í tengslum við áhugamál

Viðfangsefni: Málskilningur, málnotkun, lestur, hlustun, ritun og orðaforði í tengslum við fjölbreytt áhugamál.

Lýsing: Áhersla verður lögð á að efla alla grunnþætti, s.s. málskilning, málnotkun, lestur, hlustun og ritun. Nemendur eru þjálfaðir í að skilja einfalt talað mál, tjá sig munnlega og skriflega, lesa og hlusta á einfalda texta um fjölbreytt málefni. Mest er unnið með orðaforða sem tengist daglegu lífi nemenda með áherslu á að auka sjálfstraust til að tjá sig á tungumálinu. Megin áhersla verður lögð á að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemendur hafa, með þeim kennsluaðferðum og hjálpargögnum sem henta hverjum og einum. Nemendur æfa orðaforða út frá áhugamálum sínum eða áhugasviði. Þeir lesa einfaldan texta sem fjallar um áhugasvið þeirra og eflast í að tjá sig munnlega og skriflega um áhugasvið sitt.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • einföldum orðaforða í tengslum við efni áfangans
  • orðaforða sem tengist daglegu lífi og athöfnum
  • lestri og ritun einfalds texta
  • mikilvægi hlustunar í tungumálanámi
  • upplýsingatækni sem nýtist í tungumálanámi
  • orðaforða í tengslum við áhugamál sitt

Leikniviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:·

  • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
  • lesa og hlusta á einfaldan texta og vinna verkefni tengd honum
  • byggja upp og bæta við orðaforða sinn með mismunandi aðferðum
  • svara einföldum spurningum um daglegt líf
  • fylgja eftir og taka þátt í einföldum samræðum
  • byggja upp og bæta við orðaforða út frá áhugamáli

Hæfniviðmið: Nemandinn skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nota orðaforða og þekkingu í ensku við mismunandi aðstæður
  • vinna á fjölbreyttan hátt með einfaldan texta
  • beita virkri hlustun til að skilja inntak samræðna sem eiga sér stað í kennslustund
  • taka virkan þátt í umræðum á ensku um fjölbreytt málefni
  • sýna frumkvæði og sjálfstæði í notkun upplýsingatækni og hjálpargagna sem nýtast í tungumálanámi
  • auka sjálfstraust og trú á eigin getu við að skilja og tjá sig á ensku
  • nýta orðaforða og þekkingu sem tengist áhugamáli eða áhugasviði