ENSK2HF05 - Enska - Hagnýtur orðaforði

Viðfangsefni: Hagnýtur orðaforði, ritun, málfræði og lestur þyngri texta

Lýsing: Áhersla á aukinn hagnýtan orðaforða, ritun, munnlega færni og lestur þyngri texta. Minni áhersla er á málfræði en helstu atriði rifjuð upp í gegnum ýmis verkefni. Unnið er í verkefnalotum með ákveðin þemu í senn. Áfanginn er undirbúningur fyrir aukna áherslu á fagorðaforði og því byrjað að leggja inn grunn að fagorðaforða (academic vocabulary). Áfanginn er á stigi B2 skv. Evrópsku tungumálamöppunni.

Forkröfur: Nemandi skal hafa lokið grunnskólaprófi með einkunn B, B+ eða A, eða staðist undanfara ENSK1MF05.

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu hefðum um ritað mál
  • þverfaglegum orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
  • munnleg og skrifleg færni sem mætir hæfniviðmiðum þrepsins
  • ólíkum viðhorfum, gildum, siðum og venjum sem móta menninguna þar sem tungumálið er talað
  • grundvallarþáttum málkerfisins


Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:


Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja daglegt mál hvort sem hann þekkir umræðuefnið eða ekki
  • taka þátt í skoðanaskiptum
  • fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
  • geta útskýrt sjónarmið varðandi efni sem er ofarlega á baugi og rakið ólík rök með og á móti þeim
  • fylgja mismunandi rithefðum