ENSK3ÞE05 - Enska - Þemaáfangi í ensku

Viðfangsefni: Ýmis bókmenntaþemu tekin fyrir - breytilegt eftir önnum

Lýsing: Áfanginn er kenndur fyrir utan töflu. Í áfanganum eru tekin fyrir mismunandi þemu úr heimi bókmenntanna. Sem dæmi má nefna leikrit Shakespeare, ævintýraheimur Tolkiens, Indíánabókmenntir, glæpasögur, smásögur nýja heimsins, fantasíur og vísindaskáldssögur o.fl. Lesin verða verk eftir höfunda sem tengjast hverju þema og kynntar helstu skilgreiningar á viðkomandi bókmenntahefð. Nemendur vinna ýmis verkefni úr völdum bókum, gera kynningar og skrifa lokaritgerð. Unnið er bæði í hópum og á einstaklingsgrundvelli. Verkefni miða að því að styrkja sköpunargáfu nemenda.
Unnið er út frá ákveðnum þemum og verkefnum. Unnið er út frá stigi C1 – C2 skv. Evrópsku tungumálamöppunni.

Forkröfur: ENSK 2SO05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu einkennum þeirrar bókmenntahefðar sem unnið er með í áfanganum
  • helstu hugtökum í bókmenntafræði
  • orðaforða sem tengist námsefninu og gerir nemanda kleift að tileinka sér hann við úrvinnslu verkefna

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa sér til ánægju og upplýsingar bókmenntatexta og greiningar á því efni sem er til umfjöllunar
  • vinna sjálfstætt að verkefnum bæði á einstaklingsgrundvelli og í hópum
  • tjá sig hnökralaust um efni áfangans í ræðu og riti

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér fyrirlestra og umræður um efni áfangans
  • greina helstu einkenni þeirrar bókmenntahefðar sem unnið er með í áfanganum
  • leggja gagnrýnið mat á texta
  • beita málinu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum um efni tengt áfanganum
  • flytja vel uppbyggða frásögn eða kynningu, dregið fram aðalatriði og rökstutt mál sitt
  • beita rithefðum sem eiga við í textasmíð
  • tjá tilfinningar, nota hugarflugið og beita stílbrögðum