FÉLA2AB05 - Félagsfræði - Abrotafræði

Viðfangsefni: Afbrotafræði, hugtök, kenningar, flokkun afbrota, afbrotahegðun og refsing

Lýsing: Áfanginn er inngangur að afbrotafræði. Farið er í sögu greinarinnar og nokkrum helstu hugtökum og kenningum gerð skil. Áhersla er lögð á afbrotahegðun og refsingar m.a. í tengslum við lagskiptingu og menningarkima. Lögð er áhersla á að nemendur geti kafað undir yfirborðið og greint á gagnrýninn hátt þau mál sem efst eru á baugi í samfélagsumræðunni hverju sinni með tilliti til gilda og viðmiða samfélagsins en umfjöllun um afbrot og afbrotamenn endurspeglar ríkjandi siðferðisgildi í samfélaginu.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu kenningarlegu sjónarhornum afbrotafræðinnar
  • helstu hugtökum afbrotafræðinnar
  • helstu flokkum afbrota
  • upphafi og sögu afbrotafræðinnar og staðsetningu greinarinnar í fræðasamfélaginu

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina einstök mál tengd afbrotum út frá kenningum afbrotafræðinnar
  • beita helstu hugtökum og kenningum greinarinnar
  • greina mismunandi tegundir afbrota út frá ólíkum sjónarhornum

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • leita heimilda, leggja mat á þær og vísa rétt í þær
  • greina tengsl menningar og afbrota
  • tengja umræðu fjölmiðla um afbrot við sjónarhorn afbrotafræðinnar