FÉLA3KF05 - Félagsfræði - Kenningar og frumkvöðlar

Viðfangsefni: Meginkenningar í félagsfræði

Lýsing: í áfanganum fá nemendur kynningu á frumkvöðlum félagsfræðinnar og rannsóknaraðferðum greinarinnar. Nemendur fá þjálfun í að greina samfélagið og samskipti innan þess út frá ólíkum kenningum. Fjallað verður um eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir og farið í hin siðferðislegu vandamál er tengjast rannsóknum í félagsvísindum. Aðal markmið áfangans er að nemandi geti beitt helstu kenningum félagsfræðinnar á ýmis málefni og sitt félagslega umhverfi.

Forkröfur: FÉLA1IH05 og ÍSLE2BM05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu kenningum félagsfræðinnar, þ.e. samvirkni-, átaka- og samskiptakenningum
  • aðalatriðum feminískra kenninga og póstmódernisma
  • helstu hugtökum félagsfræðinnar
  • helstu frumkvöðlum félagsfræðinnar og áhrif þeirra á kenningar og þróun greinarinnar

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita kenningum á sjálfstæðan hátt á ýmis málefni og sitt félagslega umhverfi í umræðum og skriflegum texta
  • beita hugtökum á mismunandi viðfangsefni
  • geta tengt helstu hugtök félagsfræðinnar við samfélagslega umræðu
  • nýta sér fjölbreyttar heimildir til upplýsingaöflunar

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • greina samfélagslegan vanda á sjálfstæðan hátt og geta notað aðferðir félagsfræðinnar til að leita lausna
  • leita að heimildum, meta gæði þeirra og vitna rétt í þær
  • geta teflt saman ólíkum sjónarhornum og heimildum og sett fram á skilmerkilegan hátt
  • taka gagnrýna og fræðilega afstöðu til samfélagslegra álitamála