FÉLA3ÞF05 - Félagsfræði - Þjóðfræði, hversdagsmenning og lífshættir
Viðfangsefni: Hversdagsmenning, lífshættir og lífssýn fólks fyrr og nú.
Lýsing: Í þessum áfanga verður farið í grunnþætti þjóðfræða. Greinin er kynnt og farið yfir hvað einkennir hana og hver eru þau lykilhugtök sem tengjast efninu um leið og ólíkir þættir menningarinnar eru kynntir svo sem ævintýri, þjóðsögur, þjóðtrú, hjátrú, spádómar, hátíðir, leikir, draumar, samfélagshópar, hegðun, munnleg geymd og ólíkar tegundir flutnings.
Íslenskir þjóðhættir eru einnig skoðaðir. Lesnar þjóðsögur og farið yfir kenningar þjóðsagnafræða. Hversdagsmenning nútíðar og fortíðar er skoðuð og áhrif hennar á tungumál og lífshætti. Rýnt er í nútímann með augum þjóðfræðingsins og metið hvernig hægt er að nota ólíka miðla og texta til að koma merkingu á framfæri á ólíka vegu. Farið verður yfir aðferðafræði og siðferðileg álitaefni við söfnun þjóðfræðiefnis. Unnið verður að ýmiss konar verkefnum sem tengjast hinum margvíslegu þáttum þjóðfræðinnar. Meðal annars safna nemendur sjálfir efni sem þeir vinna með. Einnig verður stuðst við margs konar fræðsluefni úr fjölmiðlum og netheimum ásamt kvikmyndum sem tengjast efninu. Í vinnu og verkefnum áfangans reynir á kunnáttu í heimildavinnu, frumkvæði, sjálfstæð og skapandi vinnubrögð, gagnrýna hugsun, umburðarlyndi og virðingu fyrir skoðunum annarra.
Forkröfur: ÍSLE2MB05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lykilhugtökum og grunnþáttum þjóðfræða
- hvað felst í munnlegri geymd
- mismunandi tegundum texta og ólíkri miðlun þeirra, áhrifum og túlkun
- áhrifum hversdagsmenningar, meðal annars á lifnaðarhætti og tungutak
- íslenskri menningu, úr hverju hún sprettur og tengslum hennar við útlönd
- hugtökum og fræðilegum aðferðum þjóðfræða
- hugmyndafræði og viðhorfum fólks á ólíkum tímum
- heimildanotkun í tengslum við verkefnavinnu
- orðaforða sem þarf til að lesa í ólíkar heimildir (munnlegar, myndrænar, ritaðar o.fl.)
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa og greina ýmiss konar texta frá ólíkum tímum og á ólíku formi sér til gagns og geti fjallað um inntak þeirra í ræðu og riti
- beita algengum stílbrögðum í tal- og ritmáli
- skilja og geti nýtt sér helstu kenningar og hugtök í þjóðfræði
- draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum og meta áreiðanleika þeirra
- vinna verkefni af ýmsu tagi og nýta sér uppbyggilega gagnrýni
- flytja af öryggi lýsingar og kynningar á verkefnum sínum, hver fyrir sig og með öðrum
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig og fjalla um þjóðfræðileg efni í orði og riti
- sýna fram á að hann sé hæfur til að ritrýna texta og fjalla um hann í orði og riti
- taka þátt í málefnalegum umræðum, tjá skoðanir sínar og komast að rökstuddri niðurstöðu
- beita skýru, vönduðu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
- sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- vinna skapandi verkefni í tengslum við námsefnið
- átta sig á samfélagslegum skírskotunum, duldum boðskap og hugmyndum
- afla sér upplýsinga úr netheimum eða annars staðar og nýta sér þær við greiningu og kynningu á þjóðfræðilegu efni
- sýni fram á að hann kunni að vinna með heimildir á gagnrýninn og ábyrgan hátt