FORR3FV05 - Forritun - Fyrirspurnamálið SQL

Viðfangsefni: Fyrirspurnamálið SQL

Lýsing: Í áfanganum fá nemendur æfingu í fyrirspurnarmálinu SQL. Byggð er upp sú þekking sem þarf til að halda áfram í gagnasafnsfræði.

Forkröfur: FORR1FP05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Mismunandi gögnum og gagnatögum
  • Mikilvægi einræðni (uniqueness) og lykla
  • Hvernig má nýta gagnasöfn
  • Mikilvægi þess að skipuleggja vel gagnasöfn

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Hanna og skrifa fyrirspurninr í SQL
  • Búa til töflur
  • Laga til gagnasöfn svo hægt sé að vinna með þau

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Geta metið hvernig sé best að geyma gögn
  • Geta rökstutt að fyrirspurn sæki það sem henni er ætlað að sækja