FRUM2HÁ05 - Frumkvöðlafræði - Hugmyndir og áætlanir

Viðfangsefni: Viðskiptahugmynd, viðskiptaáætlun með öllu.

Lýsing: Kynnt eru grunnatriði sem hafa verður í huga við stofnun og rekstur fyrirtækis og til þess að koma vöru eða þjónustu á framfæri. Lögð er áhersla á hópavinnu og að viðskiptahugmynd hópsins sé raunhæf. Nemendur koma sér saman um eina viðskiptahugmynd (vöru eða þjónustu) og gera viðskiptaáætlun byggða á henni.

Forkröfur: Hefur lokið 1.þrepi í stærðfræði.

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ferli við að stofna og reka fyrirtæki
  • hugarflæði við hugmyndavinnu
  • tækni og aðferðum við að koma auga á viðskiptatækifæri og gildi þess að hugsa í lausnum
  • grundvallaratriðum markaðssetningar og einfaldrar markaðsrannsóknar
  • algengustu rekstrarformum smáfyrirtækja

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • þróa viðskiptahugmynd að vöru/þjónustu eða uppfinningu og meta hvaða upplýsinga og gagna er þörf
  • starfa saman í hóp
  • gera kostnaðar- og/eða hagnaðargreiningu
  • færa einfaldar dagbókarfærslur yfir einföld viðskipti
  • gera einfalda markaðsrannsókn, markaðsáætlun, auglýsinga- og kynningaráætlun, kostnaðaráætlun og söluáætlun

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hugsa jákvætt og lausnamiðað sem eflir sjálfstraust
  • gera einfalda viðskiptaáætlun
  • setja upp einföldustu gerð af rekstrar- og efnahagsreikningi byggða á bókhaldsupplýsingum
  • öðlast færni í hópastarfi sem felur meðal annars í sér samvinnu, virðingu, jákvæð samskipti, stjórnun, ábyrgð og ákvarðanatöku