FRUM3SR05 - Frumkvöðlafræði - Að stofna og reka fyrirtæki

Viðfangsefni: Stofna og reka fyrirtæki.

Lýsing: Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og virka þátttöku nemenda sem meðal annars felst í því að stofna, reka og loka fyrirtæki sem byggir á þeirra eigin viðskiptahugmynd. Nemendur koma sér saman um eina viðskiptahugmynd og gera viðskiptaáætlun byggða á henni. Þau þurfa að fjármagna viðskiptahugmyndina með útgáfu hlutabréfa, markaðsetja, framleiða og selja. Kynnt eru grunnatriði sem hafa verður í huga við stofnun og rekstur fyrirtækis og til þess að koma vöru eða þjónustu á framfæri. Lögð er áhersla á hópavinnu og að viðskiptahugmynd hópsins sé raunhæf. Við rekstur fyrirtækjanna nota nemendur þá þekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa hlotið í öðrum áföngum eins og bókfærslu, rekstrarhagfræði, markaðsfræði og fjármálum.

Forkröfur: FRUM2HÁ05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ferli þess að stofna og reka litið fyrirtæki
  • mikilvægi viðskiptaáætlana
  • gerð einfaldra rekstrar- og efnahagsreikninga
  • einföldum jafnvægis- og arðsemisútreikningum
  • mikilvægi samvinnu

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • taka ákvarðanir og taka ábyrgð á þeim
  • vinna saman í hóp
  • gera kostnaðar- og/eða hagnaðargreiningu
  • gera einfalda markaðsrannsókn, markaðsáætlun, auglýsinga- og kynningaráætlun, kostnaðaráætlun og söluáætlun.

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • undirbúa og framkvæma krefjandi verkefni eins og að stofna og reka lítið fyrirtæki
  • markaðsetja og selja vöru eða þjónustu
  • færa bókhald fyrir lítinn rekstur og gera rekstrar- og efnahagsreikning
  • öðlast færni í hópastarfi sem felur meðal annars í sér samvinnu, virðingu, jákvæð samskipti, stjórnun, ábyrgð og ákvarðanatöku
  • þróa viðskiptahugmynd að vöru eða þjónustu og gera viðskiptaáætlun
Til baka