HÁMA1GH02 - Hámark - Gróskuhugarfar, 1.áfangi

Viðfangsefni: Að vera nemandi í Flensborg, gróskuhugarfar, leiðir til árangurs í námi, heilsueflandi framhaldsskóli.

Lýsing: Í áfanganum er unnið með ramma skólastarfsins þar sem áherslan er á réttindi og skyldur nemenda. Þeim eru kenndar aðferðir við skipulag og til að hámarka árangur sinn í námi og starfi, efla trú á eigin getu og þroska með sér gróskuhugarfar með því að fá innsýn í starfsemi heilans og hvernig hann þróast og eflist við nám. Nemendur fá þjálfun í hraðlestri og glósugerð ásamt þjálfun í að beita skapandi hugsun við úrlausn verkefna sem snúa að heilsueflandi framhaldsskóla, Flensborgarhlaupinu og hópefli.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • réttindum og skyldum sínum sem nemandi
  • uppbyggingu námsins og námsaðferðum
  • starfi skólans
  • lestrar- og glósutækni
  • einkennum mismunandi hugarfars og áhrifum þess á árangur
  • hvernig breyta má hugarfari sínu til að efla námsárangur
  • því hvernig nám hefur áhrif á uppbyggingu heilans

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nýta sér skapandi hugsun við úrlausn verkefna
  • nýta sér fjölbreyttar námsaðferðir og gögn
  • hraðlestri og glósutækni
  • vinna í samstarfi við aðra
  • nýta sér margvíslega tækni í þekkingarleit og miðlun hennar
  • skoða eigið hugarfar og koma auga á hvað einkennir það

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hámarka árangur sinn í námi með því að þróa með sér gróskuhugarfar og áhrifaríkar námsaðferðir
  • eiga jákvætt og uppbyggilegt samstarf við kennara og aðra nemendur
  • takast á við áskoranir í námi af jákvæðni
  • vera virkur og ábyrgur nemandi
  • bera virðingu fyrir skólastarfinu