HEIM3KS05 - Heimspeki - Hagnýt siðfræði

Viðfangsefni: Hagnýt siðfræði

Lýsing: Í áfanganum eru nokkrar af helstu kenningar siðfræðinnar kynntar og nemendur þjálfaðir að beita þeim á hagnýtan máta. Áfanginn er verkefnamiðaður og málefni líðandi stundar nýtt til kennslu og náms.

Forkröfur: HEIM2UÓ05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • nokkrum af helstu kenningum siðfræðinnar
  • siðfræðilegri aðferðafræði
  • hvernig ólíkir menningarheimar eiga sér siðferðilegar hefðir og reglur sem kunna að vera ólíkar öðrum
  • hvernig tungumálið mótar hugsun og siðferði og getur mótað hugsun og siðferði annarra

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • miðla fræðilegu efni í texta, máli og mynd
  • leita heimilda um fjölbreytilega menningarheima
  • afla upplýsinga og setja í fræðilegt samhengi
  • setja sig í spor annarra og átta sig á ólíkum sjónarhornum siðferðisins
  • beita rökum og gagnrýninni hugsun á siðferðilega málefni

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • bera saman menningarheima og siðferðilega kenningar
  • rýna í texta og myndir á gagnrýninn hátt
  • vinna í samstarfi með ólíkar heimildir og komist að sameiginlegri niðurstöðu
  • beita vinnubrögðum siðfræðinnar til þess að vinna úr heimildum og setja fram á skilmerkilegan hátt í máli og myndum
  • beita siðferðilegum kenningum á málefni líðandi stundar