HLSE1AH02 - Heilsuefling - Almenn hreyfing - 1. áfangi í íþróttum

Viðfangsefni: almenn hreyfing og nemendur læri um heilsulæsi

Lýsing: Í áfanganum er farið yfir alhliða hreyfingu og heilsurækt þar sem nemendur læra mikilvægi upphitunar, þol- , styrktar og liðleikaþjálfun. Í byrjun taka nemendur próf og setja sér markmið fyrir lok áfangans, prófin byggja á þoli og styrk nemandans. Á miðri önn þá taka nemendur aftur próf og vita þá hvort þau eru á réttri leið. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem þjálfa alla þætti grunnþjálfunar og læra aðferðir til að efla heilsulæsi. Áfanginn er verklegur en að auki vinna nemendur verkefni sem tengist viðfangsefninu.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi hreyfingar og hvað hægt er að æfa líkamann með fjölbreyttum hætti
  • kynnist helstu þjálfunaræfingum
  • að þol-, styrktar- og liðleikaþjálfun skiptir miklu máli
  • að hægt sé að nota leiki til að byggja um heilsuna
  • markmiðssetningu

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • stunda líkams og heilsurækt
  • framkvæma þol-, styrktar- og liðleikaæfingar
  • vinna með öðrum
  • framkvæma æfingar á réttan hátt
  • nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • finna út hvaða æfingarálag henti best
  • meta stöðuna sína í þoli, styrk og liðleika
  • stunda æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamlega getu
  • beita heilsulæsi