HLSE1BG02 - Heilsuefling - Boltagreinar

Viðfangsefni: Boltagreinar

Lýsing: Kynnast ýmsum boltagreinum, farið í grunnreglur og nemendum sýnt fram á að það er hægt að komast í form í gegnum hreyfingu með bolta. Að nemandinn upplifi líkamlega og félagslega ánægju í gegnum hreyfinguna .Áfanginn er verklegur en að auki vinna nemendur verkefni sem tengist viðfangsefninu.

Forkröfur: HLSE1AH02

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ýmsu boltagreinum
  • helstu þjálfunaræfingum í hverri grein fyrir sig
  • á grunnreglum í hverri íþróttagrein
  • að hægt sé að nota ýmsar þjálfunaraðferðir í gegnum boltagreinar til að koma sér í líkamlegt form

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • stunda hreyfingu með bolta
  • dæma eftir grunnreglum hverrar greinar fyrir sig
  • vinna með öðrum
  • nýta sér möguleika til að stunda boltagreinar í nánasta umhverfi

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og likamlega líðan einstaklingsins
  • velja boltagrein til að stunda með félögunum
  • stunda æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamlega getu
Til baka