HLSE1LY02 - Heilsuefling - Lyftingar

Viðfangsefni: Lyftingar

Lýsing: Í áfanganum er farið yfir alhliða hreyfingu í tengslum við lyftingar og lyftingartækni. Unnið verðum með samhæfingu í almennum lyftingum, farið yfir tækni í lyftingum og helstu þjálfunaraðferðir. Farið er í bæði vöðvaþol og hámarkskraft. Nemendur læri að stunda kraftþjálfun sem nær til helstu vöðvahópa líkamans og hvernig helstu vöðvahóparnir virka. Einnig verður farið yfir helstu teygjuaðferðir sem er mjög mikilvægt þegar lyftingarþjálfun er stunduð. Því mjög mikilvægt er að styrkur og liðleiki haldist í hendur upp á rétta líkamsbeitingu. Áfanginn er verklegur en að auki vinna nemendur verkefni sem tengist viðfangsefninu.

Forkröfur: HLSE1AH02

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • tækninni sem þarf í lyftingaræfingum til að líkamsbeiting verði rétt
  • helstu þjálfunaraðferðum í lyftingum
  • að styrktar- og liðleikaþjálfun skiptir miklu máli og þarf að haldast í hendur
  • að hægt sé að nota ýmsar lyftingaraðferðir til að koma sér í gott form
  • að gæði æfingarinnar skiptir meira máli heldur en tíminn
  • markmiðssetningu
  • líkama sínum og vöðvakerfi

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • stunda líkams- og heilsurækt
  • framkvæma styrktar- og liðleikaæfingar
  • æfa undir góðu álagi í stuttan tíma
  • framkvæmt æfingar á réttan hátt og kynnist réttri líkamsbeitingu í lyftingarsalnum
  • nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • finna hvaða álag henti best við styrktar- og liðleikaþjálfun
  • finna hvaða lyftingartækni henti
  • stunda æfingar sem viðhalda og bæta líkamlega getu
  • beita heilsulæsi