HLSE1RG02 - Heilsuefling - Reiðhjól og ganga

Viðfangsefni:Reiðhjól og ganga

Lýsing: Nemendur vinna utan töflu og eru að nota Strava-forritið. Nemendur þurfa að skila 120 mín. á göngu, hlaupum eða hjóli til þess að fá 8 í mætingareinkunn. Til þess að fá 10 þarf að skila 180 mín.

Skila þarf hreyfingu vikulega og mun kennari fara yfir hreyfingu hvers og eins nemanda.

Forkröfur: HLSE1AH02 og 90 einingar í námsferli

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi hreyfingar og hvað hægt er að æfa líkamann með fjölbreyttum hætti
  • helstu þjálfunarþáttum
  • að þol-, styrktar- og leiðleikaþjálfun skiptir miklu máli
  • að hægt sé að nota ýmsar þjálfunaraðeferðir til að koma sér í gott form
  • að gæði æfingarinnar skiptir meira máli heldur en tíminn
  • markmiðssetning
  • að kynnast forritum í símanum sem hægt er að nota til æfinga

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • stunda líkams- og heilsurækt
  • nýta sér möguleika til að stunda heilsurækt í nánasta umhverfi
  • stunda líkams og heilsurækt með skipulögðum hætti
  • framkvæma þol-, styrktar- og liðleikaæfingar
  • æfa undir góðu álagi í stuttan tíma
  • að geta framkvæmt æfingar á réttan hátt
  • að nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi
  • að læra að nýta sér forrit í símanum til að stunda hreyfingu

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og likamlega líðan einstaklingsins
  • velja boltagrein til að stunda með félögunum
  • stunda almenna hreyfingu sem viðheldur og bætir líkamlega getu
  • þekkja sinn líkama og geti fundið út hvaða álag henti honum best
  • nemandinn sé ánægður með sitt form og líði vel í sínum líkama
  • meta stöðuna sína í þoli, styrk og liðleika
  • geta fundið út í framhaldinu hvaða líkamsrækt henti þeim
  • geta metið sitt heilsulæsi út frá styrk- og veikleika.
  • að nemandi geti skilað sinni hreyfingu til kennara í gegnum ákveðið forrit eins og Strava.