HLSE1TÁ02 - Heilsuefling - Tökum á því

Viðfangsefni: Almenn hreyfing, farið er yfir þær þjálfunaraðferðir sem eru heitastar hverju sinni í líkamsræktarheiminum í dag. Nemendur læri um heilsulæsi

Lýsing: Í áfanganum er farið yfir alhliða hreyfingu og heilsurækt þar sem nemendur læra helstu þjálfunaraðferðir sem eru vinsælar í líkamræktarheiminum hverju sinni t.d. tabada, metabolic o.fl. Í upphafi áfangans taka nemendur próf og setja sér markmið fyrir lok áfangans. Prófin byggja á þoli og styrk nemandans. Á miðri önn þá taka nemendur aftur prófin og vita þá hvort þau eru á réttri leið og hvort það þurfi að endurskoða markmiðin. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem þjálfa alla þætti grunnþjálfunar og læra aðferðir til efla heilsulæsi. Áfanginn er verklegur en að auki vinna nemendur verkefni sem tengist viðfangsefninu.

Forkröfur: HLSE1AH02

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi hreyfingar og hvað hægt er að æfa líkamann með fjölbreyttum hætti
  • helstu þjálfunarþáttum
  • mikilvægi þol-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
  • fjölbreyttum þjálfunaraðferðum til að koma sér í gott form
  • að gæði æfingarinnar skiptir meira máli heldur en tíminn
  • markmiðssetningu

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • stunda líkams og heilsurækt með skipulögðum hætti
  • framkvæma þol-, styrktar- og liðleikaæfingar
  • æfa undir góðu álagi í stuttan tíma
  • vinna með öðrum
  • framkvæma æfingar á réttan hátt
  • nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • finna út hvaða álag henti honum best
  • meta stöðuna sína í þoli, styrk og liðleika
  • finna hvaða líkamsrækt henti best
  • stunda æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamlega getu
  • beita heilsulæsi