Viðfangsefni: Bókmenntir, málnotkun og ritun
Lýsing: Í áfanganum verður lögð áhersla á grunnatriði í málfræði og stafsetningu. Nemendur eru einnig þjálfaðir í byggingu ritsmíða þar sem áhersla verður lögð á að koma efni skipulega til skila. Auk þess verður í tengslum við ritun fjallað um málnotkun og helstu hugtök beygingarfræðinnar rifjuð upp. Fjallað verður um nokkur bókmenntahugtök og nemendur læra að beita þeim við lestur. Áhersla verður lögð á tjáningu og að koma efni skýrt og vel frá sér í ræðu og riti.
Forkröfur: Hæfnieinkunn C eða C+ við lok grunnskóla, eða staðist áfangann ÍSLE1UB05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnhugtökum í málfræði og málnotkun.
- helstu ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli.
- helstu hugtökum í ritgerðasmíð og mismunandi tegundum ritsmíða.
- fjölbreyttum orðaforða til að geta tjáð skoðanir sínar og rökstutt þær bæði í rituðu og töluðu máli.
- helstu atriðum sem varða framsögn og virkni í umræðu.
- grunnhugtökum í bókmenntafræði.
- nokkrum gerðum bókmennta og ýmis konar öðrum textum.
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta og beita helstu málfræðihugtökum, svo sem við greiningu orðflokka, og bæta þannig eigin málfærni.
- stafsetja rétt.
- nýta sér margvíslega tækni í þekkingarleit sinni og miðlun þekkingar.
- nýta sér mismunandi hjálpargögn, svo sem handbækur, orðabækur, leiðréttingarforrit og ýmsa upplýsingarvefi.
- vinna með ólíkar tegundir ritsmíða og koma skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt.
- lesa sér til gagns og gamans bókmenntaverk og ýmis konar texta og fjalla um inntak þeirra.
- taka saman og flytja af öryggi kynningar á afmörkuðu efni.
- beita mismunandi blæbrigðum og málsniði í tal- og ritmáli.
- notast við fjölbreyttar námsaðferðir.
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita málfræðihugtökum á réttan hátt.
- skrifa villulausan texta með aðstoð hjálpargagna.
- skrifa mismunandi texta.
- tjá sig af öryggi á góðu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti.
- taka þátt í samræðum, færa rök fyrir máli sínu og virða skoðanir annarra.
- túlka og meta ýmis konar bókmenntir og aðra texta.
- styrkja eigin málfærni, efla málskilning og auka orðaforða.