Viðfangsefni: Málfræði, bókmenntir, bragfræði og ritun
Lýsing: Í þessum grunnáfanga vinna nemendur með undirstöðuatriði sem koma til með að gagnast í næstu íslenskuáföngum. Farið verður í ýmis málfræðihugtök sem nýtast til að efla málkunnáttu og tungumálanám. Helstu hugtök bókmennta- og bragfræði verða kynnt og ýmsir textar lesnir með þau til hliðsjónar. Félagsleg áhrif tungumálsins verða skoðuð út frá ýmsum hliðum til að nemendur átti sig á áhrifum íslenskunnar á daglegt líf. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og er lögð áhersla á ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu.
Forkröfur: Nemandi skal hafa lokið grunnskólaprófi með hæfnieinkunn B, B+ eða A, eða staðist ÍSLE1MR05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ýmsum málfræðihugtökum og hvernig þau tengjast málfærni okkar
- mismunandi tegundum bókmennta og helstu hugtökum í bókmennta- og bragfræði
- ýmsum þáttum í samspili mannlegs samfélags og íslenskunnar
- helstu hugtökum við ritgerðarsmíð og kynningar
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina ákveðin málfræðihugtök í texta, sjá hvaða áhrif þau hafa á hann og nýta þau til að efla eigin málfærni
- greina ákveðin bókmenntahugtök í texta og hvaða áhrif þau hafa á merkingu hans
- greina ákveðin bragfræðihugtök í texta til þess að átta sig á byggingu ljóða
- rita rökfærsluritgerð þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun og kemur skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
- kynna fyrir öðrum ákveðið efni, endursegja og flytja ræður
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta málfræðiþekkingu sína við ritun texta með ólíkum stílbrögðum
- túlka undirliggjandi merkingu texta
- beita ákveðnum bókmenntahugtökum við skrif á eigin texta
- geta beitt ákveðnum bragfræðireglum við ritun eigin ljóða
- semja texta og kynningar um efni sem hann hefur kynnt sér með því að beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli.