- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Skólaskjár
- Enska
- Leiðbeiningar
- Spurt og svarað
Viðfangsefni: Grunnatriði næringarfræðinnar, samspil næringar og íþróttaárangurs, læsi á innihaldslýsingum matvæla, notagildi fæðubótaefna, heilsulæsi, líkamsvitund, þjálfunaraðferðir, helstu aðferðir við líkamsþjálfun, forvarnir og fleira
Lýsing: Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á grundvallaratriðum næringarfræðinnar og samspili næringar, heilsu og íþróttaiðkunar. Farið er í helstu þjálfunaraðferðir s.s. þol, styrk og liðleika og hvaða þjálfunaraðferðir henta hverjum og einum. Fjallað er um næringarþörf mannsins, næringargildi og samsetningu helstu matvara. Farið verður í uppbyggingu og samsetningu próteins, fitu og kolvetna. Fjallað um vatn, vítamín og steinefni og gerð grein fyrir gildi þessara efna í fæðunni. Matseðlar metnir og samdir og reiknað næringargildi út frá töflum. Fjallað er um áhrif matreiðsluaðferða á næringargildi. Efnisatriði: Næringarfræði, næringartafla, orkuneysla, orkuþörf, orkuefni, prótein, fita, kolvetni, vatn, steinefni, snefilefni, vítamín, næringargildi, fæðutegundir, könnun á neysluvenjum, næringarþörf mismunandi aldurshópa, máltíðir, dagsþörf, fæðudagbók, næring fyrir, á og eftir æfingar. Nemendur læri um forvarnir, hreyfingu, hreinlæti, og fleiri þætti sem tengast heilsu og umhverfi. Heilsulæsi nemenda skiptir miklu máli þannig að þau geti fundið sér upplýsingar og lesið úr þeim til að koma í veg fyrir heilbrigðisvandamál í framtíðinni.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: